Concerts Played

Dagsetning Staður Lýsing
03.11.2000 Eyrarsundsgarður (Øresundskollegiet) í Kaupmannahöfn Þetta voru fyrstu opinberu tónleikar Hekkenfelds.   Á þessum tónleikum lék hin þriggja vikna gamla hljómsveit Hekkenfeld nokkur íslensk þekkt dægurlög frá byrjun níunda áratugarins.  Til er myndbandsupptaka frá þessari frumraun drengjanna.
10.03.2001 Ungdómshúsið á Jagtvej í Kaupmannahöfn Hljómsveitin var orðin betur samæfð.  Leikin voru íslensk þekkt dægurlög frá byrjun níunda áratugarins auk þess sem fyrsta frumsamda lag sveitarinnar (Árás) var kynnt til sögunnar.   Til er geisladiskur með þessum tónleikum.  Hann fékk heitið: Með rakettur í rassgatinu - Lífs í Ungdómshúsinu.
31.03.2001 Lundi í Svíþjóð Hekkenfeld lék fyrir dansi á samkomu íslenskra kóra á norðurlöndunum og Lundúna í Lundi í Svíþjóð.  Biggi brjálaði stóð sig ótrúlega vel og hélt uppi fjörinu á sviði.  Þar var lagið Árás spilað í heild sinni í fyrsta sinn.
06.10.2001 Húsið Rådhusstræde í Kaupmannahöfn Á þessum tónleikum hitaði Hekkenfeld upp fyrir Fræbbblana 6. október 2001.   Þessir tónleikar mörkuðu tímamót því þá flutti hljómsveitin nær einungis frumsamin lög.  Þó voru 3 lög tekin að láni frá gömlu poppurunum.
05.05.2001 Eyrarsundsgarður (Øresundskollegiet) í Kaupmannahöfn Vortónleikar.  Enn voru leikin lög eftir íslenska poppara frá byrjun níunda áratugarins.  Tónleikarnir þóttu frekar slakir.
26.05.2001 Jónshús Haldnir voru órafmagnaðir tónleikar í Jónshúsi þann 26. október.   Þetta voru þó ekki opinberir tónleikar heldur fóru þeir fram í einkasamkvæmi.
09.02.2002 Stenladen Ballerup Tónleikar ásamt 5 öðrum hljómsveitum starfandi í Kaupmannahöfn þar sem a.m.k. einn íslendur var innanborðs.   Áhorfendur voru ekki mikið fleiri en hljómsveitirnar sjálfar.  Hekkenfeld lék þá eina af sínu verstu tónleika frá upphafi.  Nær allt fór úrskeiðis svo ekki verður skrifað meira um þá tónleika.
04.05.2002 Eyrarsundsgarður (Øresundskollegiet) í Kaupmannahöfn Halldór var í fríi á Íslandi, Jón gítarleikari var í Suður-Ameríku og Siggi Bassi var hættur.   Fengnir voru afleysingagítarleikarinn Tryggvi Guðmundsson og afleysingabassaleikarinn Björn bassi til að hlaupa í skarðið.  Að auki var fenginn að láni Færeyingurinn Heri sem er gítarleikari færeysku hljómsveitarinnar Týr.  Þessir tónleikar heppnuðust feikna vel.  Þarna sýndi Hekkenfeld svo ekki varð um villst að hljómsveitin kann að rokka feitri geit.
14.09.2002 Ungdómshúsið á Jagtvej í Kaupmannahöfn Tónleikar ásamt Los Retardos. Halldór mætti ekki.
20.09.2002 Húsið Rådhusstræde í Kaupmannahöfn Tónleikar ásamt Los Retardos. Halldór mætti og skrúfaði sinn gítar í botn svo ekkert heyrðist í hinum. Hann var rekinn í kjölfarið.
03.05.2003 Eyrarsundsgarður (Øresundskollegiet) í Kaupmannahöfn Hekkenfeld tók þátt í tónlistarkvöldi á Eyrarsundsgarði í fjórða sinn, ásamt Tsunami, Grammarphone, Madmen T og Croisztans
08.11.2003 ØK bar Hekkenfeld lagði undir sig barinn á Eyrarsundsgarði og eyddi hljóðhimnum barþjónanna. Bestu tónleikar Hekkenfelds frá upphafi og brjálað stuð. Sveitin byrjaði á að flytja 8 ný og frumsamin lög sem hún hafði tekið upp í stúdíói mánuði áður. Þar á eftir flutti sveitin coverlög langt fram á nótt að beiðni áhorfenda.
14.08.2004 Spjald Kulturhus Hekkenfeld lék fyrir dansi í brúðkaupi annars gítarleikaranna og urðu að hætta eftir að hafa spilað 2 lög því lang flestir gestanna flúðu veislusalinn. Þó spiluðu þeir tvö lög undir lok veislunnar þegar flestir gestirnir voru farnir.
14.05.2005 Útgáfutónleikar á Eyrarsundsgarði Í tilefni útgáfu á diski Hekkenfelds “Umturnast” voru haldnir tónleikar. Hljómsveitin PassLoad hitaði upp. Tónleikarnir voru mjög vel heppnaðir.
01.10.2005 Huset Rådhusstræde í Kaupmannahöfn Útgáfutónleikar Nebelwerfer. Hekkenfeld á eitt lag á diski þeirrar sveitar og þeir buðu okkur að spila á útgáfutónleikum sínum. Tónleikarnir voru frekar slakir.
07.10.2006 Café Amsterdam Reykjavík Hekkenfeld kom loksins til Íslands til að halda tónleika. Tónleikarnir heppnuðust framar öllum vonum. Það var rokkað fram á nótt.
Posted: December 12, 2009 in:

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.